Dagsetning

Tilnefningar fyrir Edduverðlaunin 2019

Tilnefningar til Eddunnar 2019 voru tilkynntar í beinni útsendingu á ruv.is og facebook síðu Eddunnar kl. 13.00 í dag.

Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku sjónvarps-og kvikmyndaakademíunni og nú eru liðin tuttugu ár frá því því fyrstu verðlaunin voru veitt.  Frestur til að skila inn verkum í Edduna rann út í byrjun janúar og samkeppnin um þessi eftirsóttu verðlaun er síst minni nú en undanfarin ár. Þegar upp var staðið höfðu framleiðendur sent alls 118 verk inn í keppnina. Að auki voru 214 innsendingar í fagverðlaun Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2018 til 31. desember 2018.

Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 78 talsins. Innsendar kvikmyndir eru 7 og stuttmyndir 16. Heimildarmyndir eru 17 og 13 verk flokkast undir barna og unglingaefni.

Níu valnefndir hafa verið að störfum við að horfa á öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd verða í þeim 26 verðlaunaflokkum Eddunnar. Endanleg kosning Akademíumeðlima á milli tilnefndra verka hefst svo 12.febrúar og stendur í rúma viku.

Eins og fyrri ár mun almenn kosning fara fram á ruv.is um “Sjónvarpsefni ársins” og keppa alls 7 verk um þau verðlaun.

Úrslitin verða svo kynnt á Edduhátíðinni 2019 sem verður haldin föstudagskvöldið 22. febrúar í Austurbæ og sýnd beint á RÚV.

Tilnefningar eru sem hér segir: 

Barna- og unglingaefni Ársins
Víti í Vestmannaeyjum
Lói – þú flýgur aldrei einn
Stundin okkar

Frétta- eða viðtalsþáttur Ársins
Krakkafréttir
Kveikur
Fósturbörn
Heimildamynd Ársins
UseLess
Svona fólk 1970-1985
Litla Moskva
Kvikmynd Ársins
Kona fer í stríð
Andið eðlilega
Lof mér að falla
Leikið sjónvarpsefni Ársins
Venjulegt fólk
Mannasiðir
Steypustöðin
Menningarþáttur Ársins
Kiljan
Með okkar augum
Fullveldisöldin
Mannlífsþáttur Ársins
Andstæðingar Íslands
Hæpið
Veröld sem var
Sítengd
Líf kviknar
Skemmtiþáttur Ársins
Stundin okkar
Heimilistónajól
Áramótaskaup 2018
Stuttmynd Ársins
Islandia
Nýr dagur í Eyjafirði
To Plant a Flag
 
Brellur Ársins
Cem Olcer, Stephane Vogel og Annabelle Zoellin fyrir Kona fer í stríð
GunHil  – Lói – þú flýgur aldrei einn
Kontrast og GunHil fyrir Flateyjargátuna
Búningar Ársins
Eva Vala Guðjónsdóttir  fyrir Andið eðlilega
Eva Vala Guðjónsdóttir  fyrir Lof mér að falla
Margrét Einarsdóttir  fyrir Flateyjargátuna
Gervi Ársins
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Andið eðlilega
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Lof mér að falla
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Varg
Handrit
Baldvin Z & Birgir Örn Steinarsson fyrir Lof mér að falla
Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson fyrir Kona fer í stríð
Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega
Hljóð Ársins
Emmanuel De Boissieu og Frédéric Meert  fyrir Andið eðlilega
Aymeric Devoldere, Francois De Morant, Raphael Sohier og Vincent Cosson fyrir Kona fer í stríð
Huldar Freyr Arnarson fyrir Varg
 
Klipping Ársins
Davíð Alexander Corno fyrir Kona fer í stríð
Elísabet Ronaldsdóttir og Sigvaldi J. Kárason fyrir Varg
Úlfur Teitur Traustason fyrir Lof mér að falla
Kvikmyndataka
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Kona fer í stríð
Ita Zbroniec-Zajt og Ásgrímur Guðbjartsson fyrir Andið eðlilega
Jóhann Máni Jóhannsson fyrir Lof mér að falla
Leikari í aðalhlutverki
Eysteinn Sigurðarson fyrir Mannasiði
Gísli Örn Garðarsson fyrir Varg
Paaru Oja fyrir Undir Halastjörnu
Leikkona í aðalhlutverki
Elín Sif Halldórsdóttir fyrir Lof mér að falla
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Andið eðlilega
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kona fer í stríð
Leikkona í aukahlutverki
Babetida Sadjo fyrir Andið eðlilega
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Lof mér að falla
Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Lof mér að falla
Leikari í aukahlutverki
Kaspar Velberg fyrir Undir Halastjörnu
Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Mannasiði
Þorsteinn Bachmann fyrir Lof mér að falla
Leikmynd Ársins
Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga fyrir Lof mér að falla
Heimir Sverrisson fyrir Varg
Snorri Freyr Hilmarsson  fyrir Kona fer í stríð
Leikstjórn Ársins
Baldvin Z fyrir Lof mér að falla
Benedikt Erlingsson fyrir Kona fer í stríð
Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega
Sjónvarpsmaður Ársins
Alma Ómarsdóttir fyrir Fréttaannál 2018
Sigríður Halldórsdóttir fyrir Kveik
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Allir geta dansað
Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar og Sögur – þættir um sköpun, skrif og lestur
Viktoría Hermannsdóttir fyrir Sítengd
Tónlist Ársins
Atli Örvarsson  fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn
Davíð Þór Jónsson  fyrir Kona fer í stríð
Gyða Valtýsdóttir fyrir Undir Halastjörnu
Upptöku- eða útsendingastjórn
Björgvin Harðarson fyrir Pál Óskar í Höllinni
Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað
Þór Freysson fyrir Jólagesti Björgvins
Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning á ruv.is  
Kveikur
Líf kviknar
Með okkar augum
Áramótaskaupið
Kiljan
Mannasiðir
AÐRAR FRÉTTIR