Framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2024

Kæru framleiðendur

Nú líður að því að ákvarðað verður um framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2024. En árlega sendir ÍKSA (Íslenska kvikmynda og sjónvarpsakademían) framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í flokknum ,,besta alþjóðlega myndin”. Opnað hefur verið fyrir innsendingar til og með 11. ágúst.

Gjaldgengar eru allar kvikmyndir, 40 mínútur eða lengri, sem frumsýndar eru á Íslandi á milli 1. desember 2022 og 31. október 2023. Skilyrði er að þær hafi verið í almennum bíósýningum að lágmarki 7 daga samfleytt. Nánar um reglurnar hér.

Vakin er athygli á því að senda þarf inn verk sem eiga að koma til greina. Hlekk á innsendingarform er að finna neðst í þessari fréttatilkynningu. Innsendingafrestur er til og með 11. ágúst 2023

 

Dómnefndarfyrirkomulag

Stjórn ÍKSA skipar dómnefnd sem velur það kvikmyndaverk sem sent verður í forval Óskarsverðlaunanna. Dómnefndin er skipuð fulltrúum fagfélaga í kvikmyndaiðnaðinum auk fulltrúa frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, félagi kvikmyndahúsaeigenda og kvikmyndagagnrýnendum. 

Allir fulltrúar dómnefndar verða að vera íslenskir ríkisborgarar og félagsmenn ÍKSA. Fulltrúar mega ekki hafa tengingu við innsend og gjaldgeng verk. Fulltrúar mega ekki sitja lengur en í 6 ár samfellt en þurfa þá að taka sér tveggja ára hlé.

  • Samtök kvikmyndaleikstjóra
  • Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðenda
  • Félag leikskálda og handritshöfunda
  • Félag kvikmyndagerðarmanna
  • Kvikmyndagagnrýnandi
  • Kvikmyndamiðstöð Íslands
  • Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum
  • Félag íslenskra kvikmyndatökustjóra
  • Fulltrúi Kvikmyndahúss á Íslandi

 

Dómnefndin er skipuð við upphaf hvers árs af stjórn ÍKSA. Yfir árið reynir dómnefnd eftir bestu getu að sjá allar gjaldgengar myndir í kvikmyndahúsi.

Í júlí kallar ÍKSA eftir innsendingum með skilafrest í ágúst 2023.

Þegar innsendingarfresturinn er liðinn fær dómnefndin lista yfir myndirnar ásamt tilheyrandi tenglum og lykilorðum til að horfa á eða rifja upp. Dómnefnd kemur saman eftir að allir hafa náð að sjá öll kvikmyndaverkin, en fyrsti fundur felur í sér opnar umræður og að lokum velur hver dómnefndarmeðlimur þær tvær myndir sem viðkomandi telur standa upp úr. 

Á seinni fundinum ræðir dómnefndin allar myndirnar sem lentu efst í vali dómnefndarmeðlima, með það að markmiði að ná samstöðu um þau tvö verk sem skara fram úr. Þá fer fram atkvæðagreiðsla dómnefndar þar sem valin kvikmynd þarf að lágmarki 51% atkvæða.

Þetta ferli tryggir vandlega íhugun og mat á hverri gjaldgengri mynd og lýkur með því að dómnefndin velur endanlegt framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna.

Með því að senda eftirfarandi upplýsingar samþykkir þú þátttöku myndarinnar og samþykkir að við deilum með dómnefndinni þessum upplýsingum.

Staðfesting þátttöku er jafnframt samþykki framleiðanda þeirrar myndar sem verður valin sem framlag Íslands, á að standa skil á öllum gögnum sem þarf að senda til Óskarsverðlauna Akademíunnar fyrir 2. október 2023. 
 
Tilkynnt verður um framlag Íslands til Óskarsverðlauna þann 12. september 2023.
 

Allar nánari upplýsing er hægt að nálgast með því að senda póst á eddan@eddan.is

Skilyrði þess að starfa í valnefnd er að viðkomandi sé ekki með innsent verk í þeim flokki sem nefndin er að skoða, né má einstaklingurinn hafa persónuleg tengsl við þá sem eru tilnefndir. Sérhver valnefndarmaður skal staðfesta með sannarlegum hætti að viðkomandi uppfylli skilyrði til að starfa í valnefnd samkvæmt framansögðu og að hann muni starfa eftir vinnureglum ÍKSA. Nöfn allra valnefndarmanna verða birt á vef ÍKSA (www.eddan.is) eftir að Eddan er um garð gengin.