Dagsetning

EDDAN 2026

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían heldur EDDUNA 2026 föstudaginn 29. maí næstkomandi í Gullhömrum. Um er að ræða sannkallaða uppskeruhátíð frá kl. 18:00 – 01:00 með 35 verðlaunum, kvöldverði og eftirpartýi með DJ Berndsen.

Veislustjóri: Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir, handritshöfundur og uppistandari.

DAGSKRÁ KVÖLDSINS

Húsið opnar kl. 18 og dagskrá hefst kl. 19 og er afhendingin í þessari röð:

Handrit ársins

Leikið sjónvarpsefni ársins – kynning

Leikmynd ársins og búningar ársins

Heimildamynd ársins – kynning

Gervi ársins

Kvikmynd ársins – kynning

In memoriam

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir afhendir Heiðursverðlaun Eddunnar

kl. 20 matur borinn fram

Leikið sjónvarpsefni ársins – kynning

Leikari og leikkona í aukahlutverkum

Björg Magnúsdóttir, handritshöfundur og verðandi forseti borgarstjórnar afhendir verðlaunin Uppgötvun ársins

Heimildamynd ársins – kynning

Kvikmyndataka ársins

Leikstjóri ársins

Leikið sjónvarpsefni ársins – kynning

Klipping ársins

Brellur ársins

Heimildamynd ársins – kynning

Hljóð ársins

Tónlist ársins

Kvikmynd ársins – kynning

Erlend kvikmynd ársins

Barna- og unglingaefni ársins

Heimildastuttmynd ársins

Stuttmynd ársins

Leikið sjónvarpsefni ársins

Heimildamynd ársins

Verðandi borgarstjóri, Hildur Björnsdóttir afhendir verðlaun fyrir Kvikmynd ársins

DJ Berndsen tekur við að lokinni verðlaunaafhendingu og gleðin verður áfram við völd til kl. 01.


Við hlökkum til að njóta EDDUNNAR með ykkur

AÐRAR FRÉTTIR