Kvikmynd ársins

Það eru eingöngu framleiðslufyrirtæki sem geta sótt um, þ.a.l. eru það framleiðendur verksins sem ákveða hvaða fólk/störf koma til greina í verðlaunaflokkum.

Einungis íslenskar kvikmyndir koma til greina. Til þess að teljast gjaldgeng þarf myndin að fá 9 stig á menningarprófi Eddunnar.

Stig fást á eftirfarandi hátt:

Íslenskur leikstjóri: 3 stig

Íslenskur handritshöfundur: 3 stig

Íslenskt tungumál (meira en 50%): 2 stig

Íslenskt tungumál (að hluta til): 1 stig

Íslenskur búningahönnuður: 1 stig

Íslenskur gervahönnuður: 1 stig

Íslenskur leikmyndahönnuður: 1 stig

Íslenskur kvikmyndatökustjóri: 1 stig

Íslenskur klippari: 1 stig

Íslenskt tónskáld: 1 stig

Íslenskur hljóðhönnuður: 1 stig

Íslensk eftirvinnsla (litvinnsla, samsetning eða tæknibrellur) : 1 stig

Íslenskur leikari í aðalhlutverki 1*: 2 stig

Íslenskur leikari í aðalhlutverki 2*: 2 stig

Íslenskur leikari í aukahlutverki 1**: 1 stig

Íslenskur leikari í aukahlutverki 2**: 1 stig

Íslenskir tökustaðir (meira en 50%): 2 stig

Íslenskir tökustaðir (minna en 50%): 1 stig

*Einungis tveir leikarar í hverju verki geta talist til aðalleikara.

**Bakgrunnsleikarar án lína teljast ekki til aukaleikara.

Heimildamynd ársins

Það eru eingöngu framleiðslufyrirtæki sem geta sótt um, þ.a.l. eru það framleiðendur verksins sem ákveða hvaða fólk/störf koma til greina í verðlaunaflokkum.

Einungis íslenskar heimildamyndir koma til greina. Til þess að teljast gjaldgeng þarf myndin að fá 6 stig á menningarprófi Eddunnar.

Stig fást á eftirfarandi hátt:

Íslenskur leikstjóri: 3 stig

Íslenskur handritshöfundur: 3 stig

Íslenskt tungumál (meira en 50%): 2 stig

Íslenskt tungumál (að hluta til): 1 stig

Íslenskur kvikmyndatökustjóri: 1 stig

Íslenskur klippari: 1 stig

Íslenskt tónskáld: 1 stig

Íslenskur hljóðhönnuður: 1 stig

Íslensk eftirvinnsla (litvinnsla, samsetning eða tæknibrellur) 1 stig

Íslenskur tökustaður: 1 stig

Leikið sjónvarpsefni

Einungis íslenskir sjónvarpsþættir koma til greina. Til þess að teljast gjaldgengir þurfa þættirnir að fá 9 stig á menningarprófi Eddunnar.

Stig fást á eftirfarandi hátt:

Íslenskur leikstjóri (meira en 50% þáttaraðarinnar): 3 stig

Íslenskur leikstjóri (minna en 50% þáttaraðarinnar): 1 stig

Íslenskur handritshöfundur (meira en 50% þáttaraðarinnar): 3 stig

Íslenskur handritshöfundur (minna en 50% þáttaraðarinnar): 1 stig

Secret Link