Dagsetning

Búið að er að opna fyrir innsendingar – Eddan 2019

Opnað hefur verið fyrir innsendingar á kvikmyndum- og sjónvarpsverkum fyrir Edduna 2019. Gjaldgeng eru verk, frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2018. Sjá nánar um innsendingarreglur hér.

Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á sérstakri Innsendingarsíðu Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út allar upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum inn á ftp þjón.

http://innsending.eddan.is/

Engar breytingar hafa orðið á reglum innsendinga þetta árið. Gjald fyrir innsent verk í einn af aðalflokkum Eddunar er kr 25.000 kr og innsending í fagverðlaunaflokk kostar kr 5.000 (verð eru án vsk).

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti mánudaginn 14. janúar, 2019 og strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf. Tilkynnt verður um tilnefningar til Edduverðlauna nokkrum dögum síðar og mun þá hefjast kosning Akademíunnar.

Kjörgengir eru allir þeir sem hafa greitt aðildargjöld ÍKSA fyrir árið 2018 áður en tilnefningar eru tilkynntar.

Verið er að leggja lokahönd á nýjar reglur varðandi vægi atkvæða í endanlegri kosningu og verða þær kynntar í næstu viku.

Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.

Bestu kveðjur
Auður Elísabet Jóhannsdóttir
Framkvæmdastjóri ÍKSA

AÐRAR FRÉTTIR