Search
Close this search box.

Ástin sem eftir er – heimsfrumsýnd í Cannes

Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er, verður heimsfrumsýnd í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2025. Myndin verður sýnd í Cannes Premiere-flokki hátíðarinnar, fyrst íslenskra mynda. Hátíðin fer fram í 78. sinn dagana 13. – 24. maí. Þetta er í annað sinn sem verk eftir Hlyn er valið í aðaldagskrá hátíðarinnar í Cannes. Árið 2022 […]

Edduverðlaunin haldin 26. mars

Edduverðlaunin 2025 fara fram miðvikudaginn 26. mars næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica. Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) frá árinu 1999.  Á síðasta ári voru kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin aðskilin og Edduverðlaunin veitt í fyrsta sinn fyrir kvikmyndaverk eingöngu. ÍKSA á ekki aðkomu að fyrirhuguðum sjónvarpsverðlaunum, sem nýlega voru kynnt.  Á […]

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían auglýsir eftir umsóknum um starf framkvæmdastjóra

Starfssvið framkvæmdastjóra er eftirfarandi: Hæfniskröfur: Um er að ræða hlutastarf sem sinnt er árið um kring með álagspunktum á tilteknu tímabili í kringum undirbúning og afhendingu Edduverðlauna. Ferilskrá skal fylgja umsókn og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknarfrestur er til og með […]

Tilnefningar til Eddunnar 2022

Tilnefningar til Eddunnar 2022 eru nú opinberar, en þær voru kynntar á Facebook síðu Eddunnar og á ruv.is á milli kl. 11:00 og 14:00 í dag, fimmtudaginn 28. apríl.

Eddan 2021 – Tilkynning frá stjórn ÍKSA

Stjórn ÍKSA hefur afráðið að Edduverðlaunin 2021 verði veitt með haustinu með það að markmiði að halda hefðbundna Edduhátíð. Þegar nær dregur verður tilkynnt um útfærslu á verðlaunaafhendingunni og sjónvarpsútsendingu í tengslum við hana. Tilkynnt var um tilnefningar til Edduverðlaunanna þann 26. mars síðastliðinn. Netvarp Eddunnar mun opna fyrir akademíumeðlimi þriðjudaginn 20. apríl. Akademíumeðlimir geta […]

Árni Páll Jóhannsson

Nýverið voru Edduverðlaunin afhent verðlaunahöfum í sjónvarpsdagskrá á RÚV. Í þættinum var minnst þeirra einstaklinga úr kvikmynda- og sjónvarpsgreininni sem létust á árunum 2019 – 2020. Við kveðjum þetta góða fólk með virðingu. Rík ástæða er fyrir stjórn ÍKSA að minnast sérstaklega Árna Páls Jóhannssonar, enda lifir minning hans ekki bara í ódauðlegum listakverkum og […]

Eddan 2018 – Opnað fyrir innsendingar

Byrjað er að taka á móti kvikmynda- og sjónvarpsverkum vegna Eddunnar 2018, sem haldin verður á Hótel Hilton 25. febrúar 2018. Gjaldgeng eru verk, frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2017. Sjá nánar um innsendingarreglur. Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á sérstakri Innsendingarsíðu Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út allar upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og […]

Hrútar framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna

Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar völdu kvikmyndina Hrúta sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. Hrútar mun því keppa fyrir Íslands hönd um Óskarsverðlaunin fyrir bestu kvikmyndina á erlendu tungumáli. Hrútar hlaut meirihluta atkvæða Akademíumeðlima en kosningu lauk á miðnætti 7. september. Kosningin fór fram rafrænt og var kosið á milli fimm íslenskra kvikmynda […]

Vonarstræti með 12 Eddur

Kvikmyndin Vonarstræti sópaði til sín verðlaunum á Eddunni 2015 sem haldin var laugardagskvöldið 21. febrúar og fékk alls tólf verðlaun, meðal annars sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn, handrit, kvikmyndatöku og klippingu. Báðir aðalleikararnir í Vonarstræti, þau Þorsteinn Bachmann og Hera Hilmarsdóttir hlutu Eddustyttuna. Edduna fyrir aukahlutverk fengu þau Helgi Björnsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir […]

Eddan á laugardaginn

Kosningu er lokið á milli tilnefndra verka í Edduna og næsta laugardag, 21. febrúar, setjum við upp spariskóna og opnum verðlaunaumslögin á Edduhátíðinni 2015. Eddan fer fram í Silfurbergi í Hörpu og er sjónvarpað beint og í opinni dagskrá á Stöð 2. Útsendingin hefst um kl. 19 frá Rauða dreglinum þar sem stjörnurnar mæta í […]