Dagsetning

Eddan 2018 – Opnað fyrir innsendingar

Byrjað er að taka á móti kvikmynda- og sjónvarpsverkum vegna Eddunnar 2018, sem haldin verður á Hótel Hilton 25. febrúar 2018. Gjaldgeng eru verk, frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2017. Sjá nánar um innsendingarreglur.

Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á sérstakri Innsendingarsíðu Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út allar upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum inn á ftp þjón.

http://innsending.netvarp.is/

Gjald fyrir innsent verk í einn af aðalflokkum Eddunar er kr 25.000 kr og innsending í fagverðlaunaflokk kostar kr 5.000 (verð eru án vsk).

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti mánudaginn 15. janúar, 2018 og strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf. Tilkynnt verður um tilnefningar til Edduverðlauna nokkrum dögum síðar og hefst kosning Akademíunnar þá.

Kjörgengir eru allir þeir sem hafa greitt aðildargjöld ÍKSA fyrir árið 2017 áður en tilnefningar eru tilkynntar.

Eins og var samþykkt haustið 2015 gilda atkvæði valnefnda 50% á móti atkvæðum meðlima ÍKSA í endanlegri kosningu.

Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.

Bestu kveðjur
Auður Elísabet Jóhannsdóttir
Framkvæmdastjóri ÍKSA

AÐRAR FRÉTTIR