EDDAN

2023

Ágúst Guðmundsson

Ágúst Guðmundsson hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2023 fyrir sitt afar mikilvæga og einstaka framlag til íslenskrar kvikmyndalistar.

Ágúst fæddist 1947 og er lykilmaður í þeirri miklu sköpunarbylgju sem varð í kringum 1980 og er stundum kölluð íslenska kvikmyndavorið. Hann hefur allar götur síðan verið í hópi okkar helstu og farsælustu kvikmyndaleikstjóra.

Á sjöunda áratuginum nam hann við Menntaskólann í Reykjavík og tók þar þátt í stofnun Kvikmyndaklúbbs framhaldsskólanna. Varð sá félagsskapur honum mikill innblástur, enda voru sýnd þar mörg meistaraverkin. Um leið var þessi tími einstakur í kvikmyndasögunni fyrir þróttmikla nýsköpun og nýja nálgun á gerð kvikmynda þar sem persónuleg listræn sýn var höfð í fyrirrúmi.

Um tíma stóð hugur hans til þess að verða leikari og hann stundaði nám við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins. Þegar hann fékk síðan hlutverk í sjónvarpsleikriti stóð hann ásamt fjölda manns umkringdur tækjum og tólum í myndveri hins nýstofnaða Sjónvarps við Laugaveg. Á þeirri stundu læddist sú hugsun að honum að kvikmyndaleikstjórn væri eitthvað sem ætti vel við hann.

Á Landsbókasafninu rakst hann á auglýsingu um þá nýstofnaðan kvikmyndaskóla í Bretlandi, The National Film School. Hann sótti um og lauk þaðan námi í kvikmyndaleikstjórn árið 1977. 

Það varð síðan hlutskipti Ágústs Guðmundssonar ásamt öðrum í sömu hugleiðingum að finna kvikmyndalistinni farveg í íslenskri menningu.

Eftir heimkomu gerði hann meðal annars sjónvarpsmyndina Skólaferð sem byggð var á reynslu hans og skólafélaga hans. Stuttmyndin Lítil þúfa kom skömmu síðar.

Fyrsta bíómynd hans, Land og synir, var frumsýnd í janúar 1980 og er eitt helsta kennileitið í íslenskri kvikmyndasögu, þar sem hún markar upphafið að samfelldri framleiðslu íslenskra bíómynda. Myndina gerði hann í samvinnu við Jón Hermannsson framleiðanda og Indriða G. Þorsteinsson rithöfund og fyrsta heiðursverðlaunahafa ÍKSA, en myndin var byggð á samnefndri skáldsögu hans.

Næstu árin rekur hver myndin aðra. Stórmyndin Útlaginn var frumsýnd 1981, sú fyrsta og hingað til eina sem byggð er á Íslendingasögu, Gísla sögu Súrssonar. Næst kom söngva- og gleðimyndin Með allt á hreinu sem hann gerði í samvinnu við Stuðmenn og Grýlurnar og er án efa er vinsælasta kvikmynd okkar Íslendinga fyrr og síðar. Enn í dag er hún reglulega sýnd í kvikmyndahúsum fyrir fullu húsi. Gamanmyndin Gullsandur birtist síðan 1984 þar sem gert er góðlátlegt grín að íslenskri þjóðarsál.

Eftir þetta gerir Ágúst meðal annars húmoríska ástarsögu fyrir Sjónvarpið, Ást í kjörbúð og síðan stóra alþjóðlega þáttaröð, Nonna og Manna, sem gerð var í samvinnu Norðmanna, Þjóðverja og Íslendinga og byggð á víðkunnnum bókum Jóns Sveinssonar um samnefnda bræður. Þáttaröðin hefur verið sýnd víða um heim og er enn sýnd reglulega. 1990 gerir hann svo viðamikla ævintýraþætti, The Sea Dragon sem sýndir voru á ITV sjónvarpsstöðinni í Bretlandi.

Eftir að hafa gert sjónvarpsmyndina Litbrigði jarðarinnnar eftir samnefndri sögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, snýr Ágúst aftur á hvíta tjaldið árið 1998 með dramatísku gamanmyndinni Dansinn. Myndin var byggð á skáldsögu hins færeyska William Heinesen. Þremur árum síðar kom ísmeygileg þroskasaga, Mávahlátur, sem byggð var á samnefndri skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. 2004 tók Ágúst aftur saman við Stuðmenn í kvikmyndinni Í takt við tímann, sem var nokkurskonar framhald Með allt á hreinu. Loks frumsýndi hann árið 2013 gamanmyndina Ófeigur gengur aftur með Ladda í aðalhlutverki.

Kvikmyndir Ágústs eru eins fjölbreyttar og þær eru margar, en um leið eiga þær sameiginlegt skýra húmaníska sýn og forvitni um mannlega hegðun auk þess sem látlaus gamansemin er aldrei langt undan.