Dagsetning

Eddan 2020 – Tilnefningar

Tilnefningar til Eddunnar 2020 hafa nú verið gerðar opinberar, en þær voru kynntar á Facebook síðu Eddunnar og á ruv.is á milli kl. 10:00 og 12:30 í dag, föstudaginn 6. mars.

Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Innsend verk í ár eru fjölmörg, en þegar innsendingafresti lauk þann 21. janúar sl. höfðu framleiðendur sent alls 121 verk inn í keppnina.  Að auki voru 266 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2019 til 31. desember 2019.

Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 90 talsins. Innsendar kvikmyndir eru 11 og stuttmyndir 3. Heimildarmyndir eru 17 og 11 verk flokkast undir barna og unglingaefni.

Það var í höndum ellefu valnefnda að fara yfir öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd eru í samtals 27 verðlaunaflokkum Eddunnar. Endanleg val er svo í höndum Akademíumeðlima og hefst kosningin, sem er rafræn, þann 9. mars og stendur yfir í viku.

Eins og fyrri ár mun almenn kosning fara fram á ruv.is um “Sjónvarpsefni ársins”. Öll tilnefnd sjónvarpsverk, alls 28 talsins, keppa til þeirra verðlauna.

 

 

Tilnefningar eru sem hér segir:

Barna- og unglingaefni ársins
Goðheimar
Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland
Sögur, söguspilið

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Hvað höfum við gert?
Kveikur
Leitin að upprunanum

Heimildamynd ársins
Ég er einfaldur maður – ég heiti Gleb
Flórídafanginn
KAF
Síðasta haustið
Vasulka áhrifin

Kvikmynd ársins
Agnes Joy
Hvítur, hvítur dagur
Bergmál

Leikið sjónvarpsefni ársins
Ófærð 2
Pabbahelgar
Venjulegt Fólk 2

Menningarþáttur ársins
Framkoma
Fyrir alla muni
Kiljan
Með okkar augum
Víkingur Heiðar leikur Bach

Mannlífsþáttur ársins
Kokkaflakk II
Lifum lengur
Nörd í Reykjavík
Svona fólk
Veröld sem var

Skemmtiþáttur ársins
Allir geta dansað
Áramótaskaup 2019
Ísskápastríð
Kappsmál
Vikan með Gísla Marteini

Stuttmynd ársins
Blaðberinn
Móðurást
Wilma

Íþróttaefni ársins
Dominos körfuboltakvöld
Heimsleikarnir
HM stofan (HM kvenna í fótbolta)
Íþróttaannálar Stöðvar 2 sport
Undankeppni EM karla í fótbolta

Brellur ársins
CAN Film, Gustav Törnroth, RGB, Jón Már Gunnarsson fyrir Hvítur, hvítur dagur
Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðardóttir, Haukur Karlsson fyrir Ófærð 2
Sigurgeir Arinbjarnarson fyrir Pabbahelgar

Búningar ársins
Helga Rós V. Hannam fyrir Ófærð 2
Margrét Einarsdóttir fyrir Goðheimar
Rebekka Jónsdóttir fyrir Pabbahelgar

Gervi ársins
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Ófærð 2
Kristín Júlla Kristjánsdóttir og Salla Kaarina Yli-Luopa fyrir Goðheimar
Ragna Fossberg fyrir Arctic

Handrit ársins
Hlynur Pálmason fyrir Hvítur, hvítur dagur
Nanna Kristín Magnúsdóttir, Huldar Breiðfjörð og Sólveig Jónsdóttir fyrir Pabbahelgar
Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Agnes Joy

Hljóð ársins
Gunnar Árnason fyrir Agnes Joy
Kjartan Kjartansson fyrir End of Sentence
Lars Halvorsen fyrir Hvítur, hvítur dagur

Klipping ársins
Julius Krebs Damsbo fyrir Hvítur, hvítur dagur
Kristján Loðmfjörð og Lína Thoroddsen fyrir Agnes Joy
Logi Ingimarsson fyrir Eden
Stefanía Thors fyrir Vesalings elskendur
Valdís Óskarsdóttir og Kristján Loðmfjörð fyrir End of Sentence

Kvikmyndataka ársins
Maria von Hausswolff fyrir Hvítur, hvítur dagur
Sophia Olsson fyrir Bergmál
Tómas Örn Tómasson fyrir Arctic

Leikari ársins í aðalhlutverki
Björn Thors fyrir Vesalings elskendur
Ingvar E. Sigurðsson fyrir Hvítur, hvítur dagur
Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Pabbahelgar

Leikari ársins í aukahlutverki
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Agnes Joy
Hilmir Snær Guðnason fyrir Hvítur, hvítur dagur
Hinrik Ólafsson fyrir Héraðið
Jóel Ingi Sæmundsson fyrir Vesalings elskendur
Þorsteinn Bachmann fyrir Agnes Joy

Leikkona ársins í aðalhlutverki
Arndís Hrönn Egilsdóttir fyrir Héraðið
Katla Margrét Þorgeirsdóttir fyrir Agnes Joy
Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir Pabbahelgar

Leikkona ársins í aukahlutverki
Donna Cruz fyrir Agnes Joy
Ída Mekkín Hlynsdóttir fyrir Hvítur, hvítur dagur
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Pabbahelgar
Sólveig Arnarsdóttir fyrir Ófærð 2
Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Ófærð 2

Leikmynd ársins
Atli Geir Grétarsson fyrir Arctic
Bjarni Sigurbjörnsson fyrir Héraðið
Hulda Helgadóttir fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikstjóri ársins
Grímur Hákonarson fyrir Héraðið
Hlynur Pálmason fyrir Hvítur, hvítur dagur
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson fyrir Pabbahelgar
Rúnar Rúnarsson fyrir Bergmál
Silja Hauksdóttir fyrir Agnes Joy

Sjónvarpsmaður ársins
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Guðrún Sóley Gestsdóttir
Helgi Seljan
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Steiney Skúladóttir

Tónlist ársins
Davíð Berndsen fyrir Þorsti
Edmund Finnis fyrir Hvítur, hvítur dagur
Gísli Galdur Þorgeirsson fyrir Pabbahelgar
Jófríður Ákadóttir fyrir Agnes Joy
Kira Kira fyrir Tryggð

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins
Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað
Björgvin Harðarson fyrir Mugison í beinni
Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg fyrir Söngvakeppnin 2019
Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Undankeppni EM karla í fótbolta
Þór Freysson fyrir Afmælistónleikar Helgi Björns

Sjónvarpsefni ársins
Allir geta dansað
Áramótaskaup 2019
Dominos körfuboltakvöld
Framkoma
Fyrir alla muni
Heimsleikarnir
HM stofan (HM kvenna í fótbolta)
Hvað höfum við gert?
Ísskápastríð
Íþróttaannálar Stöðvar 2 sport
Kappsmál
Kiljan
Kokkaflakk II
Kveikur
Leitin að upprunanum
Lifum lengur
Með okkar augum
Nörd í Reykjavík
Ófærð 2
Pabbahelgar
Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland
Sögur, söguspilið
Svona fólk
Undankeppni EM karla í fótbolta
Venjulegt Fólk 2
Veröld sem var
Vikan með Gísla Marteini
Víkingur Heiðar leikur Bach

AÐRAR FRÉTTIR