Dagsetning

Tilnefningar til Edduverðlauna fyrir árið 2017

Valnefndir fyrir Edduverðlaunin hafa lokið störfum og skilað af sér niðurstöðum um það hverjir eru tilnefndir til Edduverðlauna fyrir árið 2017. 

Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar velja nú á milli þeirra tilnefndu og kjósa um verðlaunahafana.

Þetta er í 19. skiptið sem Edduverðlaunin eru veitt og fer viðburðurinn fram á Hótel Hilton þann 25. febrúar og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Inn voru send alls 111 verk; 8 kvikmyndir í fullri lengd, 13 heimildamyndir, 10 í flokkinn barnaefni, 9 stuttmyndir, 5 verk í flokkinn leikið sjónvarpsefni og 76 í annað sjónvarpsefni.

Verðlaunaflokkarnir eru 26, auk heiðursverðlauna en nýjum flokki hefur verið bætt við, en það er “Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins, lifandi viðburðir í sjónvarpi.” Alls 27 verðlaun.

Almenn kosning mun fara fram á ruv.is um “Sjónvarpsefni ársins” og keppa 9 verk um þau verðlaun.

Edduverðlaunin verða í beinni útsendingu á RÚV þann 25. febrúar og hefjast klukkan 20:15.

Tilnefningar eru sem hér segir: 

Barna- og unglingaefni Ársins

Loforð

Sumarbörn

Örkin

 

Frétta- eða viðtalsþáttur Ársins

Auðæfi hafsins 2

Fósturbörn

Kveikur

 

Heimildarmynd Ársins

Háski fjöllin rumska

Out of Thin Air

Reynir sterki

 

Kvikmynd Ársins

Svanurinn

Undir trénu

Vetrarbræður

 

Leikið sjónvarpsefni Ársins

Fangar

Loforð

Stella Blómkvist

 

Menningarþáttur Ársins

Framapot

Kiljan

Klassíkin okkar

Opnun

Tungumál framtíðarinnar

 

Mannlífsþáttur Ársins

Hæpið

Leitin að upprunanum

Paradísarheimt

Ævar vísindamaður

Ævi

 

Skemmtiþáttur Ársins

Andri á flandri í túristalandi

Áramótaskaup 2017

Hulli 2

 

Stuttmynd Ársins

Atelier

Frelsun

Munda

 

Brellur Ársins

Kontrast, Davíð Jón Ögmundsson, Sigurgeir Arinbjarnarson og Arnar Jónsson fyrir Stellu Blómkvist

Pétur Karlsson fyrir Svaninn

The Gentlemen Broncos, Alexander Schepelern, Emil Pétursson og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu

 

Búningar Ársins

Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Stellu Blómkvist

Helga Rós V. Hannam fyrir Fanga

Sylvia Dögg Halldórsdóttir fyrir Svaninn

 

Gervi Ársins

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Out of Thin Air

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Fanga

 

Handrit

Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn

Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu

Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar Bragason fyrir Fanga

 

Hljóð Ársins

Björn Viktorsson, Frank Mølgaard Knudsen og Sylvester Holm fyrir Undir trénu

Huldar Freyr Arnarson, Pétur Einarsson og Daði Georgson fyrir Fanga

Tina Andreas fyrir Svaninn

 

Klipping Ársins

Guðni Hilmar Halldórsson og Gunnar Bjarni Guðbjörnsson fyrir Stellu Blómkvist

Kristján Loðmfjörð fyrir Undir trénu

Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson fyrir Fanga

 

Kvikmyndataka

Jakob Ingimundarson fyrir Ég man þig

Martin Neumeyer fyrir Svaninn

Árni Filippusson fyrir Fanga

 

Leikari í aðalhlutverki

Elliott Crosset Hove fyrir Vetrarbræður

Jóhannes Haukur Jóhannesson fyrir Ég man þig

Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Undir trénu

 

Leikkona í aðalhlutverki

Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir trénu

Gríma Valsdóttir fyrir Svaninn

Heiða Rún Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist

 

Leikkona í aukahlutverki

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Fanga

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Fanga

Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Fanga

 

Leikari í aukahlutverki

Lars Mikkelsen fyrir Vetrarbræður

Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir trénu

Þorsteinn Bachmann fyrir Undir trénu

 

Leikmynd Ársins

Haukur Karlsson fyrir Stellu Blómkvist

Heimir Sverrisson fyrir Fanga

Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu

 

Leikstjórn Ársins

Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu

Ragnar Bragason fyrir Fanga

 

Sjónvarpsmaður Ársins

Guðrún Sóley Gestsdóttir fyrir Kastljós og Menninguna

Sigríður Halldórsdóttir fyrir Ævi

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Leitina að upprunanum

Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar

Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrir Hæpið

 

Tónlist Ársins

Daníel Bjarnason fyrir Undir trénu

Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason fyrir Svaninn

Pétur Ben fyrir Fanga

 

Upptöku- eða útsendingastjórn

Helgi Jóhannesson og Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Söngvakeppnina 2017

Helgi Jóhannesson fyrir Njálu

Jón Haukur Jensson fyrir Voice Live

Þór Freysson fyrir Kórar Íslands

Þór Freysson fyrir Nýdönsk: sjálfshátíð í sjónvarpssal        

 

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning á ruv.is

Fangar

Fósturbörn

Kveikur

Leitin að upprunanum

Loforð

Opnun

Stella Blómkvist

Ævi

Örkin

AÐRAR FRÉTTIR