Dagsetning

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían fjölgar fagdeildum

Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að opna akademíuna fyrir fleiri fagaðilum í íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum. Markmiðið er að styrkja akademíuna með þátttöku fleiri aðila í starfsemi hennar og kosningum til Edduverðlauna á ári hverju.
“Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu ár og því fannst okkur kominn tími til að uppfæra aðildarkröfur ÍKSA í takt við breytta tíma og mikla grósku í greininni.” segir Anton Máni Svansson, formaður stjórnar ÍKSA.

Til þess að taka þátt í kosningu vegna Edduverðlaunanna 2026 verða nýir meðlimir að sækja um aðild að akademíunni í síðasta lagi 31. mars. Meðlimir ÍKSA fá að njóta þess besta sem íslensk kvikmynda- og sjónvarpsgerð hefur upp á að bjóða í Edduvarpinu og kjósa það sem stendur upp úr til Edduverðlaunanna. Einnig mun þeim standa til boða að kaupa miða á verðlaunahátíðina sjálfa, sem verður einstök uppskeruhátið fyrir bransann.

Sótt er um aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónarpsakademíunni í gegnum vefsíðuna eddan.is. Hér er að finna hlekk á umsókn um aðild:

Hér má sjá uppfærðan lista fagdeilda:

Áhættuleikur

Brellur

Búningar

Eftirvinnsla

Farartæki og aðstaða

Framleiðsla

Gagnrýni

Handrit

Hár og förðun

Hljóð

Hreyfingar

Klipping

Kvikmyndahátíðir   

Kvikmyndahús   

Kvikmyndataka 

Leiklist

Leikstjórn

Leikmynd

Ljós og grip

Sjálfbærni

Sjónvarpsútsendingar

Tækjaleigur                                                                                              

Tölvubrellur

Tökustaðir

Tónlist

Umboðsaðilar

Athugið að undirflokka hverrar deildar má finna undir umsóknarsíðunni
 
Þar sem listinn er nýr og enn í vinnslu, tekur stjórn ÍKSA  ábendingum fagnandi á netfangið eddan@eddan.is og skoðar þær með opnum huga.

AÐRAR FRÉTTIR