Félagsgjöld
ÍKSA

Aðildargjöld fyrir árið 2024 er 5.900 kr

Skráning Í AKADEMÍUNA

Á undanförnum árum hefur meðlimum í ÍKSA fjölgað ár frá ári, eftir því sem fleiri verk hafa verið send inn til Edduverðlaunanna. Á sama tíma hefur fjöldi meðlima hætt í faginu án þess að senda okkur skilaboð um slíkt. Svo ekki sé nú talað um breytingar á heimilisföngum, netföngum og öðru sem þarf til að halda sambandi við meðlimi Akademíunnar.

Á fundi hagsmunaaðila um Edduna sem var í Bíó Paradís í nóvember 2011 var meðal annars rætt um að taka upp hógvær félagsgjöld að Akademíunni til að standa undir auknum kostnaði hennar við að uppfæra kjörskrár, kostnað við rafrænar kosningar um Edduverðlaunin og um framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna, auk hækkunar við verðlaunin sjálf. Sú staðreynd blasti einnig við að það voru innan við helmingur skráðra Akademíumeðlima að kjósa í þeim rafrænu kosningum sem haldnar voru.

Stjórn ÍKSA ákvað í framhaldi að taka upp félagsgjöld enda væri með því verið að skjóta sterkari stoðum undir ÍKSA, auk þess sem þar væri komið kærkomið tækifæri til að taka til á meðlimalistum Akademíunnar.

Í ársbyrjun 2012 voru sendir út greiðsluseðlar fyrir 2.000 krónur sem voru með gjalddaga þann 3. febrúar 2012 og eindaga 31. desember 2012 þannig að allir núverandi meðlimir ÍKSA höfðu heilt ár til að ákveða sig með áframhaldandi þátttöku. Eftir 31.12. 2012 voru þeir sem ekki höfðu greitt settir út af félagaskránni og þurfa að sækja um aðild að nýju. Aðeins þeir Akademíumeðlimir sem hafa greitt félagsgjöld hvert ár verða kjörgengir í valinu um Edduverðlaunin og framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna.

Undanþegnir félagsgjaldinu eru þeir meðlimir Akademíunnar sem eru handhafar heiðursverðlauna Eddunnar í gegnum árin og þeir félagar sem eru 67 ára og eldri.

Árið 2017 hækkuðu félagsjöldin upp í 3.000 kr sem var með gjaldaga í janúar 2017 og eindaga í desember 2017.

Milli áranna 2017 – 2023 hækkuðu félagsgjöldin úr 3.000 kr upp í 4.900 kr