Dagsetning

Tilnefningar til EDDUNNAR 2026

Tilnefningar til Eddunnar, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna, 2026 hafa verið gerðar opinberar en þær voru kynntar á samfélagsmiðlum Eddunnar milli kl. 11:00 og 14:00 í dag, föstudaginn 10. apríl.

Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) frá árinu 1999. Tilnefningar til Edduverðlauna eru kosnar af hópi valnefnda skipuðum fagaðilum í greininni. Verðlaunahafar eru svo kosnir af öllum meðlimum ÍKSA, en nýverið fjölgaði akademían fagdeildum sínum og opnaði fyrir inngöngu mun fleira fagfólks sem vinnur að störfum tengdum kvikmynda- og sjónvarpsgerð. 

35 verðlaun ásamt heiðursverðlaunum ÍKSA og Uppgötvun ársins

Á Eddunni 2026 verða veitt 35 verðlaun til kvikmynda- og sjónvarpsverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025. Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt, ásamt því að uppgötvun ársins hlýtur viðurkenningu, en þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu. 

51 verk og 256 innsendingar til fagverðlauna

Alls bárust 51 verk og 256 innsendingar til fagverðlauna, en í ár var einnig bætt við 15 nýjum flokkum fyrir leikið sjónvarpsefni og fagverðlaun þeim tengdum.  Innsendar voru þrettán heimildamyndir, sjö heimildastuttmyndir, ellefu stuttmyndir, sex kvikmyndir í fullri lengd, tíu leiknar sjónvarpsþáttaseríur, og sjö erlendar kvikmyndir.

Valnefndir

44 einstaklingar sátu í níu valnefndum fyrir hina 35 verðlaunaflokka. Meðlimir ÍKSA munu svo kjósa um tilnefningarnar og verður Edduvarpið opið meðlimum frá 14. apríl til 12. maí en kosningin sjálf stendur yfir frá 1. – 12. maí. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.

Edduverðlaunin verða afhent í lok maí.

Eftirtalin verk hlutu flestar tilnefningar:

Kvikmyndir:

Ástin sem eftir er, 13 tilnefningar

Eldarnir,  12 tilnefningar

The Damned, 8 tilnefningar

Leikið sjónvarpsefni:

Felix & Klara, 11 tilnefningar

King and Conqueror, 11 tilnefningar

Vigdís, 9 tilnefningar

Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS

Merki, framleiðendur Norður / Ingimar Guðbjartsson / Rúnar Ingi Einarsson / Lára Theódóra Kettler Kristjánsdóttir

Tólf, framleiðendur Dýnamík Stúdíó / Guðjón Ragnarsson

Vonardagur, framleiðandi Signý Rós

ERLEND KVIKMYND ÁRSINS

Heldin (Late shift), Max Dreifing

It Was Just An Accident, Heimili kvikmyndanna – Bíó Paradís

One Battle After Another, Sambíóin

Sentimental Value, Max Dreifing

The Secret Agent, Heimili kvikmyndanna – Bíó Paradís

HEIMILDAMYND ÁRSINS

Jörðin undir fótum okkar, framleiðendur Akkeri Films / Hanna Björk Valsdóttir

Paradís Amatörsins, framleiðendur Stefnuljós / Tinna Ottesen

Strengur, framleiðendur Sagafilm / Þungur hnífur / Aðalsteinn Jóhannsson / Gaukur Úlfarsson / Ragnar Agnarsson

HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS

Musteri minninga, framleiðendur Sensor / Kári Úlfsson / Erlendur Sveinsson

Ósigraður, framleiðandi Jóna Gréta Hilmarsdóttir

Póstkort, framleiðendur Silfurskjár / Heather Millard / Freyja Kristinsdóttir

KVIKMYND ÁRSINS

Ástin sem eftir er, framleiðendur STILL VIVID / Anton Máni Svansson / Katrin Pors

Eldarnir, framleiðendur Netop Films / Grímar Jónsson

The Damned, framleiðendur Join Motion Pictures / Emilie Jouffroy / Kamilla Kristiane Hodøl / Guðmundur Arnar Guðmundsson

STUTTMYND ÁRSINS

Merki, framleiðendur Norður / Ingimar Guðbjartsson / Rúnar Ingi Einarsson / Lára Theódóra Kettler Kristjánsdóttir

Tólf framleiðendur Dýnamík Stúdíó / Guðjón Ragnarsson

Vonardagur framleiðandi Signý Rós

LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS

Felix & Klara, framleiðendur Mystery Ísland / Davíð Óskar Ólafsson

King and Conqueror, framleiðendur RVK Studios / Rabbit Track Pictures / The Development Partnership / Shepherd Content

Vigdís framleiðendur Vesturport / Rakel Garðarsdóttir / Ágústa M. Ólafsdóttir / Ásta S. Einarsdóttir

BRELLUR ÁRSINS – KVIKMYND

Peter Hjorth, Anders Nyman og Haukur Karlsson fyrir Ástina sem eftir er

Szymon Kania og Eggert Ketilsson fyrir Eldana

BÚNINGAR ÁRSINS – KVIKMYND

Helen Beaumont fyrir The Damned

Margrét Einarsdóttir fyrir Eldana

Rebekka Jónsdóttir fyrir Fjallið

GERVI ÁRSINS – KVIKMYND

Ásta Hafþórsdóttir og Sophie King fyrir The Damned

Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Hemmet

Ísak Freyr Helgason fyrir Fjallið

HANDRIT ÁRSINS – KVIKMYND

Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er

Jamie Hannigan fyrir The Damned

Ugla Hauksdóttir og Markus Englmair fyrir Eldana

HLJÓÐ ÁRSINS – KVIKMYND

Björn Viktorsson fyrir Jörðina undir fótum okkar

Gunnar Árnason fyrir Fjallið

Michał Fojcik og Zofia Moruś fyrir Eldana

KLIPPING ÁRSINS – KVIKMYND

Daníel Bjarnason fyrir Voru allir hér? Laugar í 100 ár

Julius Krebs Damsbo fyrir Ástina sem eftir er

Kristján Loðmfjörð fyrir Eldana

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS – KVIKMYND

Eli Arenson fyrir The Damned

Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er

Ollie Downey fyrir Eldana

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – KVIKMYND

Björn Hlynur Haraldsson fyrir Fjallið

Joe Cole fyrir The Damned

Sverrir Guðnason fyrir Ástina sem eftir er

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – KVIKMYND

Anders Mossling fyrir Ástina sem eftir er

Ingvar E. Sigurðsson fyrir Ástina sem eftir er

Jóhann G. Jóhannsson fyrir Eldana

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – KVIKMYND

Odessa Young fyrir The Damned

Saga Garðarsdóttir fyrir Ástina sem eftir er

Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir Eldana

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – KVIKMYND

Ída Mekkín Hlynsdóttir fyrir Ástina sem eftir er

María Heba Þorkelsdóttir fyrir Eldana

LEIKMYND ÁRSINS – KVIKMYND

Frosti Friðriksson fyrir The Damned

Heimir Sverrisson fyrir Eldana

Frosti Friðriksson fyrir Ástina sem eftir er

LEIKSTJÓRI ÁRSINS – KVIKMYND

Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er

Yrsa Roca Fannberg fyrir Jörðina undir fótum okkar

Þórður Pálsson fyrir The Damned

TÓNLIST ÁRSINS – KVIKMYND

Harry Hunt fyrir Ástina sem eftir er

Helgi Svavar Helgason fyrir Fjallið

Herdís Stefánsdóttir fyrir Eldana

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – SJÓNVARP

James Norton fyrir King and Conqueror

Jón Gnarr fyrir Felix & Klöru

Nikolaj Coster-Waldau fyrir King and Conqueror

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – SJÓNVARP

Eddie Marsan fyrir King and Conqueror

Ivo Canelas fyrir Heimaey

Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Brján

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – SJÓNVARP

Catarina Rebelo fyrir Heimaey

Elín Hall fyrir Vigdísi

Emily Beecham fyrir King and Conqueror

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – SJÓNVARP

Anna Svava Knútsdóttir fyrir Heimaey

Juliet Stevenson fyrir King and Conqueror

Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Reykjavík Fusion

BRELLUR ÁRSINS – SJÓNVARP

Haukur Karlsson fyrir Reykjavík Fusion

Pétur Karlsson fyrir Felix & Klöru

BÚNINGAR ÁRSINS – SJÓNVARP

Helga I. Stefánsdóttir fyrir Vigdísi

Helga Rós V. Hannam fyrir Felix & Klöru

Margrét Einarsdóttir fyrir King and Conqueror

GERVI ÁRSINS – SJÓNVARP

Ásta Hafþórsdóttir, Thomas Foldberg og Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Felix & Klöru

Josephine Hoy fyrir Vigdísi

Ásta Hafþórsdóttir fyrir King and Conqueror

HANDRIT ÁRSINS – SJÓNVARP

Ágústa M. Ólafsdóttir og Björg Magnúsdóttir fyrir Vigdísi

Ragnar Bragason og Jón Gnarr fyrir Felix & Klöru

Óttar Martin Norðfjörð, Snorri Þórisson og Björg Magnúsdóttir fyrir Reykjavík 112

HLJÓÐ ÁRSINS – SJÓNVARP

Björn Viktorsson fyrir Felix & Klöru

Gunnar Árnason fyrir Vigdísi

Kjartan Kjartansson og Huldar Freyr Arnarson fyrir King and Conqueror

KLIPPING ÁRSINS – SJÓNVARP

Logi Ingimarsson og Gunnar B. Guðbjörnsson fyrir Reykjavík 112

Úlfur Teitur Traustason fyrir Reykjavík Fusion

Valdís Óskarsdóttir fyrir Felix & Klöru

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS – SJÓNVARP

Bergsteinn Björgúlfsson fyrir King and Conqueror

Eli Arenson fyrir Vigdísi

Óttar Guðnason fyrir Reykjavík Fusion

LEIKMYND ÁRSINS – SJÓNVARP

Guðni Rúnar Gunnarsson fyrir Reykjavík Fusion

Heimir Sverrisson fyrir Vigdísi

Hulda Helgadóttir fyrir Felix & Klöru

LEIKSTJÓRI ÁRSINS – SJÓNVARP

Baltasar Kormákur, Balint Szentgyorgyi, Nikolaj Coster-Waldau og Erik Leijonborg fyrir King and Conqueror

Ragnar Bragason fyrir Felix & Klöru

Tinna Hrafnsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fyrir Vigdísi

TÓNLIST ÁRSINS – SJÓNVARP

Eðvarð Egilsson fyrir Reykjavík 112

Mugison fyrir Felix & Klöru

Veigar Margeirsson fyrir Reykjavík Fusion

AÐRAR FRÉTTIR