Opnað hefur verið fyrir innsendingar verka til Eddunnar 2026. Gjaldgeng eru verk sem frumsýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025.
LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI Á EDDUNNI 2026
Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að bæta við fimm nýjum verðlaunaflokkum á Eddunni 2026, besta leikna sjónvarpsefnið og leikkona og leikari í aðal- og aukahlutverkum í sjónvarpi.
INNSENDINGARFERLIÐ
Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á innsendingarvef Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp fyrir Edduvarpið.
Innsendingargjöld eru sem hér segir:
- Barna- og unglingamynd ársins, Kvikmynd ársins og Leikið sjónvarpsefni ársins kr. 34.500.
- Heimildamynd ársins kr. 23.000.
- Stuttmynd ársins og Heimildastuttmynd ársins kr. 11.500.
- Fagverðlaun kr. 7.500.
Öll verð eru án vsk.
Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti þriðjudaginn 10. febrúar. Strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.
Tilnefningar til Eddunnar 2026 verða kynntar í mars.


