Dagsetning

108 kvikmynda- og sjónvarpsverk í Edduna

Samkeppnin hefur sjaldan verið eins hörð um hinar eftirsóttu Eddustyttur og í ár, en frestur til að skila inn verkum í Edduna 2015, uppskeruhátíð Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA), rann út 7. janúar.

Þegar upp var staðið höfðu framleiðendur sent inn alls 108 verk í keppnina. Að auki voru nöfn 265 einstaklinga, sem unnu við öll þessi kvikmynda- og sjónvarpsverk, send inn í fagverðlaun Eddunnar. Gjaldgeng voru verk sem voru frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2014 til 31. desember 2014.

Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 69 talsins. Innsendar kvikmyndir eru níu, tólf heimildamyndir og sex stuttmyndir. Fjöldi innsendinga er svipaður og síðustu ár en þó vekur sérstaka athygli að innsendum verkum í flokkinn Barna- og unglingaefni hefur fjölgað í alls tólf, miðað við fimm verk í fyrra, og hefur aldrei verið jafn mikill.

Tvær breytingar á starfsreglum Eddunnar voru ákveðnar á fundi Fagráðs Eddunnar í haust. Annars vegar sú að ef innsend verk í flokk eru fleiri en tuttugu, þá yrðu tilnefningarnar fimm en ef innsendingarnar væru færri en tuttugu yrðu tilnefningarnar þrjár. Áður miðaðist fjöldi tilnefninga við 10 innsendingar.

Hins vegar var ákveðið að skipta verðlaunaflokknum: Menningar- og lífsstílsþáttur upp í tvo verðlaunaflokka, þ.e. annars vegar Menningarþáttur ársins og hins vegar Lífsstílsþáttur ársins.

Fjórar forvalsnefndir taka nú til starfa við að horfa á öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd verða í öllum 24 verðlaunaflokkum Eddunnar. Tilkynnt verður um tilnefningarnar 3. febrúar og í kjölfarið hefst kosning Akademíumeðlima á milli tilnefndra verka.

Úrslit kosningarinnar verða svo tilkynnt á Edduhátíðinni 2015 sem að þessu sinni verður haldin laugardaginn 21. febrúar í Silfurbergi í Hörpu og sýnd beint og í opinni dagskrá á Stöð 2.

AÐRAR FRÉTTIR