Tilnefningar
2022

Tilnefningar til Eddunnar 2022 eru nú opinberar, en þær voru kynntar á Facebook síðu Eddunnar og á ruv.is á milli kl. 11:00 og 14:00 í dag, fimmtudaginn 28. apríl. Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Innsend verk í ár eru fjölmörg, en þegar innsendingar fresti lauk þann 15. febrúar sl. höfðu framleiðendur sent inn alls 138 verk. Að auki voru 369 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2021 til 31. desember 2021. Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 154 talsins og kvikmyndir 10, heimildamyndir eru 13 og 15 verk flokkast undir barna- og unglingaefni. Það var í höndum ellefu valnefnda að fara yfir öll innsend verk og tilnefna í samtals 27 verðlaunaflokkum. Endanlegt val er svo í höndum Akademíunnar sem tilkynnt verður á hátíðinni sem haldin verður í Háskólabíó 18. september næstkomandi. Hátíðin verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á RÚV að venju. Auk þeirra verðlauna sem veitt verða í þeim flokkum sem taldir eru upp hér fyrir neðan verða veitt sérstök heiðursverðlaun sem tilkynnt verða á hátíðinni sem og verðlaun fyrir sjónvarpsefni ársins en val á því fer fram með sérstakri kosningu sem opin verður öllum á rúv.is.

Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS
Benedikt búálfur
Birta
Krakkafréttir
Stundin okkar
Tilraunir með Vísinda Villa

FRÉTTA- EÐA VIÐTALSÞÁTTUR ÁRSINS
Kompás
Kveikur
Leitin að upprunanum
Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri
Ofsóknir

HEIMILDAMYND ÁRSINS
Hvunndagshetjur
Hækkum rána
Tídægra / Apausalypse

ÍÞRÓTTAEFNI ÁRSINS
EM í dag
Pepsi Max deildin (Karla & kvenna)
Skólahreysti
Undankeppni HM karla í fótbolta
Víkingar: Fullkominn endir

KVIKMYND ÁRSINS
Dýrið
Leynilögga
Wolka

LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS
Katla
Systrabönd
Vegferð

MANNLÍFSÞÁTTUR ÁRSINS
Allskonar Kynlíf
Dagur í lífi
Gulli Byggir
Heil og sæl?
Missir

MENNINGARÞÁTTUR ÁRSINS
Framkoma 3
Fyrir alla muni 2
Lesblinda
Menningin
Tónlistarmennirnir okkar

SKEMMTIÞÁTTUR ÁRSINS
Áramótaskaupið 2021
Blindur Bakstur
Hraðfréttajól
Stóra Sviðið
Vikan með Gísla Marteini

STUTTMYND ÁRSINS
Blindhæð
Heartless
When We Are Born

BRELLUR ÁRSINS
Frederik Nord & Peter Hjorth fyrir Dýrið
Monopix, ShortCut, NetFx & Davíð Jón Ögmundsson fyrir Katla
Rob Tasker fyrir Systrabönd

BÚNINGAR ÁRSINS
Brynja Skjaldardóttir fyrir Wolka
Margrét Einarsdóttir fyrir Dýrið
Margrét Einarsdóttir fyrir Lille Sommerfugl

GERVI ÁRSINS
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Ófærð 3
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Dýrið
Ragna Fossberg fyrir Katla

HANDRIT ÁRSINS
Jóhann Ævar Grímsson, Jónas Margeir Ingólfsson, Snjólaug Lúðvíksdóttir & Dóra Jóhannsdóttir fyrir Stella Blómkvist II
Jóhann Ævar Grímsson, Silja Hauksdóttir, Björg Magnúsdóttir & Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd
Nína Petersen, Sverrir Þór Sverrisson & Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
Sigurður Pétursson & Einar Þór Gunnlaugsson fyrir Korter yfir sjö
Valdimar Jóhannsson & Sjón fyrir Dýrið

HLJÓÐ ÁRSINS
Björn Viktorsson fyrir Lille Sommerfugl
Huldar Freyr Arnarson fyrir Katla
Ingvar Lundberg & Björn Viktorsson fyrir Dýrið

KLIPPING ÁRSINS
Agnieszka Glinska fyrir Dýrið
Guðni Hilmar Halldórsson & Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
Jakob Halldórsson fyrir Hækkum rána
Mateusz Rybka PSM fyrir Wolka
Valdís Óskarsdóttir & Marteinn Þórsson fyrir Þorpið í bakgarðinum

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS
Andri Haraldsson fyrir Tídægra / Apausalypse
Anton Karl Kristensen fyrir Harmur
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Þorpið í bakgarðinum
Eli Arenson fyrir Dýrið
Marek Rajca PSC fyrir Wolka

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Björn Thors fyrir Katla
Egill Einarsson fyrir Leynilögga
Hilmir Snær Guðnason fyrir Dýrið
Ólafur Darri Ólafsson fyrir Vegferð
Víkingur Kristjánsson fyrir Vegferð

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Dýrið
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Leynilögga
Hlynur Atli Harðarson fyrir Katla
Jónas Björn Guðmundsson fyrir Harmur
Sveinn Geirsson fyrir Systrabönd

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Ilmur Kristjánsdóttir fyrir Systrabönd
Íris Tanja Flygenring fyrir Katla
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd
Lilja Nótt Þórarinsdóttir fyrir Systrabönd
Olga Boladz fyrir Wolka

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Anna Moskal fyrir Wolka
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Systrabönd
María Heba Þorkelsdóttir fyrir Systrabönd
Sólveig Arnarsdóttir fyrir Katla
Vivian Ólafsdóttir fyrir Leynilögga

LEIKMYND ÁRSINS
Lásló Rajk fyrir Alma
Marta Luiza Macuga fyrir Wolka
Rollin Hunt fyrir Stella Blómkvist II
Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Dýrið
Sunneva Ása Weisshappel fyrir Katla

LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Árni Ólafur Ásgeirsson fyrir Wolka
Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
Óskar Þór Axelsson & Þóra Hilmarsdóttir fyrir Stella Blómkvist II
Silja Hauksdóttir fyrir Systrabönd
Valdimar Jóhannsson fyrir Dýrið

SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS
Edda Sif Pálsdóttir
Guðrún Sóley Gestsdóttir
Helgi Seljan
Kristjana Arnarsdóttir
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir

TÓNLIST ÁRSINS
Frank Hall fyrir Stella Blómkvist II
Högni Egilsson fyrir Katla
Jófríður Ákadóttir fyrir Þorpið í bakgarðinum
Sunna Gunnlaugsdóttir fyrir Ísland: Bíóland
Þórarinn Guðnason fyrir Dýrið

UPPTÖKU- EÐA ÚTSENDINGASTJÓRI ÁRSINS
Björn Emilsson fyrir Ljótu hálfvitarnir
Gísli Berg & Samúel Bjarki Pétursson fyrir Kappsmál
Salóme Þorkelsdóttir fyrir Straumar
Salóme Þorkelsdóttir fyrir Tónaflóð á Menningarnótt
Þór Freysson fyrir Tilraunir með Vísinda Villa