Search
Close this search box.

Starfsreglur
Eddunnar

1. Innsendingar

1.1. Stefnt skal að því að halda Edduverðlaunahátíðina í febrúar ár hvert og skal verðlaunaafhendingin bera ártal þess árs sem hún er haldin.

1.2. Innsend verk skulu hafa verið frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til og með 31. desember árið á undan hátíðinni. Verk skulu hafa verið frumsýnd í íslensku kvikmyndahúsi eða á íslenskri kvikmyndahátíð þar sem almenningi hefur gefist kostur á að mæta og/eða á miðli með umtalsverða dreifingu á Íslandi. Þessi regla á við alla flokka, nema annað sé tekið fram.

Verkin verða að hafa verið frumsýnd á Íslandi á fyrrnefndu tímabili en að auki mega ekki hafa liðið meira en tvö ár frá fyrsta frumsýningardegi, hafi verkið fyrst verið frumsýnt erlendis. Sem dæmi, ef kvikmynd hefur verið frumsýnd erlendis árið 1998 en frumsýnd á Íslandi 1999 er verkið gjaldgengt til Edduverðlaunanna árið 2000.

1.3. Verk sem til greina koma skulu vera að meirihluta framleidd af íslenskum fyrirtækjum eða uppfylla skilyrði þeirra samframleiðslusamninga sem Ísland er aðili að.

Nöfn erlendra ríkisborgara, sem taka þátt í íslenskum myndum samkvæmt skilgreiningunni að ofan, er einnig heimilt að senda inn til Edduverðlauna.

1.4. Seinni hluta árs auglýsir stjórn ÍKSA eftir myndum sem koma til greina í neðantalda flokka. Skal skilafrestur vera tilgreindur í auglýsingunni sem og dagsetning þar sem tilnefningar verða gerðar opinberar.

Auglýsinguna skal birta á vef ÍKSA (www.eddan.is) en einnig skal óskað eftir birtingu á miðlum kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi og í öðrum miðlum eftir því sem stjórn ÍKSA telur ástæðu og efni til.

Stjórn ÍKSA ákvarðar upphæð innsendingargjalda hverju sinni. Til að verk komi til greina verður ávallt að greiða grunngjald fyrir innsent verk, jafnvel þó aðeins sé verið að senda verkið inn í fagverðlaun.

1.5. Aðeins er hægt að tilnefna verk í einn aðalflokk. Þannig telst t.d. sérstök viðhafnarúgáfa verks ekki sem sjálfstætt verk.

Athugið að í sumum tilvikum geta verk átt heima í fleiri en einum verðlaunaflokki en sbr. reglu 1.5 er aðeins hægt að senda sama verk inn í einn aðalflokk. Það er framleiðenda sjálfra að skilgreina verk sín og ákvarða inn í hvaða flokk þeir kjósa að senda þau.

Eina undantekning þessarar reglu er flokkurinn Barna- og unglingamynd ársins. Heimilt er að senda sama verk inn í Barna- og unglingamynd ársins og annan flokk að auki, svo sem Kvikmynd ársins, án aukakostnaðar. Verk skal þá vera sent inn í viðeigandi flokk og um leið sé hakað við barna- og unglingamynd ársins.

1.6. Verðlaunaflokkar Edduverðlaunanna.

Tilnefningar eru aldrei fleiri en þrjár í hverjum verðlaunaflokki. Ef innsend verk í tiltekinn flokk eru fjögur eða færri eru einungis tvær tilnefningar.

VERÐLAUNAFLOKKAR EDDUNNAR:

1. BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRSINS
Verk sem ætluð eru ungum áhorfendum og eru minnst 5 mínútur að lengd. Verkið þarf að vera stakt og getur verið leikin kvikmynd, teiknimynd eða heimildamynd.

2. ERLEND KVIKMYND ÁRSINS
Leikin kvikmynd eða heimildamynd í fullri lengd, 40 mínútur eða lengri. Myndin þarf að hafa verið sýnd í íslensku kvikmyndahúsi þar sem almenningi hefur gefist kostur á að mæta að lágmarki í 7 daga.

3. HEIMILDAMYND ÁRSINS
Heimildamyndir 40 mínútur eða lengri.

4. HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS
Stutt heimildarmynd, allt að 40 mínútum að lengd.

5. KVIKMYND ÁRSINS
Leikin kvikmynd í fullri lengd, 40 mínútur eða lengri.

6. STUTTMYND ÁRSINS
Leikin stuttmynd, teiknimynd og eða í öðru formi allt að 40 mínútum að lengd.

FAGVERÐLAUNAFLOKKAR:

7. BRELLUR ÁRSINS
Hefðbundnar (SFX) og eða stafrænar brellur (VFX). Framleiðendum ber að hlaða upp “fyrir og eftir” myndbrot með umsókn.

8. BÚNINGAR ÁRSINS
Búningar í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

9. GERVI ÁRSINS
Förðun, hár og/eða gervi í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

10. HANDRIT ÁRSINS
Handrit að leikinni kvikmynd í fullri lengd.
Framleiðendum ber að senda inn handrit með umsókn í pdf formi á eddan@eddan.is.

11. HLJÓÐ ÁRSINS
Hljóðhönnun og hljóðvinnsla í leikinni kvikmynd eða heimildamynd í fullri lengd.

12. KLIPPING ÁRSINS
Klipping í leikinni kvikmynd eða heimildamynd í fullri lengd.

13. KVIKMYNDATAKA ÁRSINS
Kvikmyndataka í leikinni kvikmynd eða heimildamynd í fullri lengd.

14. LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Leikari í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

15. LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Leikari í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

16. LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Leikkona í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

17. LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Leikkona í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

18. LEIKMYND ÁRSINS
Leikmynd í leikinni kvikmynd í fullri lengd.

19. LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Leikstjóri í leikinni kvikmynd eða heimildarmynd í fullri lengd.

20. TÓNLIST ÁRSINS
Frumsamin tónlist í kvikmynd eða heimildamynd í fullri lengd. Frumsamin tónlist skal nema að minnsta kosti 35% af allri tónlist verks.

Önnur verðlaun:

21. HEIÐURSVERÐLAUN
Heiðursverðlaun falla í skaut þeim sem lagt hafa fram einstakan skerf til íslenskra kvikmynda og/eða sjónvarps. Stjórn ÍKSA velur heiðursverðlaunahafa hverju sinni.

22. UPPGÖTVUN ÁRSINS
Einstaklingur sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki. Viðkomandi hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu. Stjórn ÍKSA velur tilnefningar hverju sinni.

2. Valnefndir

2.1. Valnefndir skoða allt innsent efni og velja þau verk sem eru tilnefnd til Edduverðlaunanna. Skipaður er formaður hverrar valnefndar sem hittir nefnd sína að minnsta kosti einu sinni í ferlinu, en hver valnefndar manneskja kýs milli verka samkvæmt eigin sannfæringu. Fjöldi tilnefninga eru alltaf þrjár nema í flokknum Erlend kvikmynd ársins, þar sem þær eru fimm.

2.2. Alls eru valnefndir átta talsins.

1. VALNEFND UM LEIKNAR KVIKMYNDIR
Valnefnd um leiknar kvikmyndir velur verk í eftirfarandi flokka:
Barna- og unglingamynd ársins; Kvikmynd ársins; Leikari ársins í aðalhlutverki; Leikari ársins í aukahlutverki; Leikkona ársins í aðalhlutverki; Leikkona ársins í aukahlutverki og Stuttmynd ársins.

2. VALNEFND UM HEIMILDAMYNDIR
Valnefnd um heimildamyndir velur verk í flokkana Heimildamynd ársins og Heimildastuttmynd ársins.

3. VALNEFND UM ERLENDAR KVIKMYNDIR
Valnefnd um Erlenda kvikmynd ársins.

4. VALNEFNDIR FAGVERÐLAUNA
Valnefndir um fagverðlaun velja verk í eftirfarandi flokka:
Brellur ársins; Búningar ársins; Gervi ársins; Handrit ársins; Hljóð ársins; Klipping ársins; Kvikmyndataka ársins; Leikmynd ársins; Leikstjóri ársins; og Tónlist ársins.

Valnefndum er skipt í eftirfarandi flokka:

  • Búningar og gervi
  • Brellur og leikmynd
  • Klipping og kvikmyndataka
  • Handrit og leikstjórn
  • Hljóð og tónlist

 

2.3. Fimm aðilar skulu starfa í hverri valnefnd. Stjórn ÍKSA mun gæta þess að hafa kynjahlutföll sem jöfnust. Fulltrúar valnefnda skulu vera meðlimir ÍKSA og leitast er eftir fulltrúum sem hafa sérþekkingu hvað varðar menntun og/eða störf á sviði kvikmynda.

Skilyrði þess að starfa í valnefnd er að viðkomandi sé ekki með innsent verk í þeim flokki sem nefndin er að skoða, né má einstaklingurinn hafa persónuleg tengsl við þá sem eru tilnefndir. Valnefndir vinna eftir vinnureglum sem stjórn ÍKSA samþykkir. Sérhver einstaklingur í valnefnd skal staðfesta með sannanlegum hætti að viðkomandi uppfylli skilyrði til að starfa í valnefnd samkvæmt framansögðu og að hann muni starfa eftir vinnureglum ÍKSA. Nöfn allra valnefndafulltrúa skulu birt á vef ÍKSA (www.eddan.is) eftir að Edduverðlaunin hafa verið afhent, þar sem skilgreint verður hvernig skipað var í valnefndir.

3. Kjörskrá

3.1. Rétt að aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni hafa þau er sannanlega hafa unnið að tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum í einum eftirfarandi flokka.

Athugið að með kvikmynda- eða sjónvarpsverkefnum er átt við verk sem hafa verið sýnd í íslensku kvikmyndahúsi eða á íslenskri kvikmyndahátíð þar sem almenningi hefur gefist kostur á að mæta (þ.e. sýningin hefur verið í auglýstri dagskrá kvikmyndahússins / hátíðarinnar) og/eða á miðli með umtalsverða dreifingu.

Starfsheiti:

  • Aðstoðarleikstjóri
  • Aðstoðartökumaður
  • Áhættuleikari
  • Brellumeistari
  • Búningahönnuður
  • Framkvæmdastjóri
  • Framleiðandi
  • Förðunarmeistari
  • Grafískur hönnuður
  • Gripill
  • Handritshöfundur
  • Hljóðhönnuður
  • Hljóðmaður
  • Klippari
  • Kvikmyndatökumaður
  • Leikari í aðal- og/eða aukahlutverki
  • Leikmunavörður
  • Leikmyndahönnuður
  • Leikstjóri
  • Ljósahönnuður
  • Myndblandari
  • Skrifta
  • Sviðsmaður
  • Tónlistarhöfundur
  • Tæknistjóri
  • Upptökustjóri

 

3.2. Á kjörskrá vegna Edduverðlaunanna hverju sinni eru aðeins þeir meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem hafa greitt félagsgjöld ÍKSA það árið. Kjörskrá er birt inn á vef Eddunnar. Þeir sem ekki eru á kjörskrá geta farið á eddan.is, skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og greitt félagsgjöldin.

Kærur, er varða kjörskrá ef einhverjar eru, skulu berast ÍKSA ásamt skriflegum rökstuðningi. Stjórn ÍKSA fjallar um kærur sem kunna að berast.

4. TILNEFNINGAVAL OG KOSNING

4.1. Stjórn ÍKSA skipar sérstaka kjörstjórn til að hafa yfirumsjón með kosningu og sjá um talningu atkvæða. Engin meðlimur kjörstjórnar má vera tilnefndur til Eddu-verðlaunanna né hafa komið á nokkurn hátt að gerð þeirra verka sem kosið er um.

4.2. Kosning skal vera rafræn og fara fram með þeim hætti að þeir sem eru á kjörskrá ÍKSA fá sendan kjörseðil í tölvupósti. Skal þess gætt að hver meðlimur geti aðeins kosið einu sinni.

Kærufrestur vegna niðurstöðu kosninga er ein vika frá opinberun niðurstöðu. Kæra skal berast stjórn ÍKSA.

Kjörgögn eru í vörslu kjörstjórnar sem hefur umsjón með kosningu.

4.3. Atkvæði valnefnda (þ.e. niðurstöður úr starfi valnefnda, sjá grein 2) gilda 50% á móti atkvæðum meðlima ÍKSA í endanlegri kosningu á milli tilnefndra verka um Edduverðlaunin.

Talningin atkvæða fer þannig fram: hver valnefndaaðili gefum verkum stig, 2, 4, 6, 8 eða 10. Stig fyrir hvert verk eru lögð saman og þau þrjú eða fimm verk sem fá flest stig eru tilnefnd. Ef tvö eða fleiri verk eru jöfn að stigum er það tilnefnt sem hefur fleiri 10 stig, fleiri 8 stig ef fjöldi 10 stiga er jafn og svo framvegis. Ef einkunnagjöf er nákvæmlega eins ræður hlutkesti.

Þegar akademían hefur kosið er reiknað hlutfall atkvæða hvers verks af heildaratkvæðum og hlutfall stiga hvers verks hjá valnefndum af heildarstigum þannig að summa allra hlutfalla er 100%. Síðan er reiknað meðaltal af hlutfalli akademíunnar og valnefnda, semsagt hlutfall valnefnda / 2 + hlutfall akademíu / 2. Verkið sem er með hæsta meðaltalið er útnefnt. Ef tvö verk eru með jafnt hlutfall ræður kosning akademíunnar, það er það verk sem er með betri kosningu í adakemíunni er útnefnt. Ef jafnt er bæði hjá valnefnd og adademíunni ráða fleiri 10 stig hjá valnefndum og svo framvegis. Ef enn er jafnt ræður hlutkesti.

5. ÚRSLIT

5.1. Úrslit atkvæðagreiðslunnar skulu kunngjörð á verðlaunahátíðinni sem haldin skal eigi síðar en tveim vikum eftir að tímabil kosningar rennur út.

6. ÁGREININGUR

6.1. Rísi upp ágreiningur um framkvæmd eða fyrirkomulag kosninganna skal stjórn ÍKSA hafa úrskurðarvald í öllum deilumálum.