Opnað hefur verið fyrir innsendingar kvikmyndaverka fyrir Edduna 2025. Gjaldgeng eru verk sem frumsýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2024.
Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á innsendingarvef Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp fyrir Edduvarpið.
Innsendingargjöld eru sem hér segir:
- Barna- og unglingamynd ársins, Erlend kvikmynd ársins og Kvikmynd ársins er kr. 33.000.
- Heimildamynd ársins er kr. 22.000.
- Stuttmynd ársins og Heimildastuttmynd ársins er kr.11.000.
- Til fagverðlauna er kr. 7.000.
Öll verð eru án vsk.
Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti miðvikudaginn 15. janúar, 2025. Strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.
Tilnefningar til Eddunnar 2025 verða kynntar 20. febrúar 2025.
Senda inn verk til Eddunnar 2025
Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.