Dagsetning

Fagflokkar Leikins sjónvarpsefnis

Stjórnir ÍKSA og Sjónvarpsverðlaunanna hafa samþykkt uppfært samkomulag um skiptingu verðlaunaflokka milli Edduverðlaunahátíðarinnar og Sjónvarpsverðlaunanna.

Samkvæmt nýju fyrirkomulagi verða öll fagverðlaun fyrir leikið sjónvarpsefni veitt á Edduverðlaununum, og bætast þar með við tíu nýir flokkar í Edduna ofan á þá fimm sem kynntir voru nýverið.
Sjónvarpsverðlaunin munu áfram veita verðlaun fyrir besta leikna sjónvarpsefnið, samhliða því að heiðra fjölbreytta dagskrárgerð í sjónvarpi og veita fagverðlaun í þeim flokkum.

Forsvarsaðilar hátíðanna hafa síðustu tvö ár unnið að því, hvor í sínu lagi, að móta tvær sjálfstæðar hátíðir með skýrri aðgreiningu milli kvikmynda og sjónvarpsefnis. Markmiðið hefur verið að styrkja umgjörð verðlauna í takt við aukna grósku í geiranum. Aðilar eru nú sammála um að skýrari línur milli verðlaunaflokka þjóni best hagsmunum fagfólks í geiranum. Þá er talið eðlilegt og skynsamlegt að fagverðlaun fyrir kvikmyndir og leikið sjónvarpsefni séu veitt innan sömu hátíðar, enda er að stórum hluta um sama fagfólkið að ræða sem vinnur að framleiðslu leikins efnis, óháð miðli.

Stjórnir ÍKSA og Sjónvarpsverðlaunanna hlakka til áframhaldandi samstarfs og þróunar hátíðanna tveggja í takt við breytt landslag og sameiginlega hagsmuni kvikmynda- og sjónvarpsgerðar á Íslandi.

Þeir sjónvarpsframleiðendur sem þegar hafa sent inn verk sín til Eddunnar fá nú tækifæri til að opna innsendinguna sína aftur og bæta við tilnefningum í alla fagverðlaunaflokkana. Sá frestur rennur út mánudaginn 2. mars

AÐRAR FRÉTTIR