Dagsetning

EDDAN 2026 – innsendingarfrestur framlengdur

Innsendingarfrestur verka til Eddunnar 2026 hefur verið framlengdur til föstudagsins 20. febrúar. Gjaldgeng eru verk sem frumsýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025. 

INNSENDINGARFERLIР

Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á innsendingarvef EDDUNNAR. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp fyrir Edduvarpið. 

Innsendingargjöld eru sem hér segir: 

  • Barna- og unglingamynd ársins, Kvikmynd ársins og Leikið sjónvarpsefni ársins kr. 34.500.
  • Heimildamynd ársins kr. 23.000.
  • Stuttmynd ársins og Heimildastuttmynd ársins  kr. 11.500.
  • Fagverðlaun kr. 7.500. 

Öll verð eru án vsk.

Frestur til að senda inn verk hefur nú verið framlengdur eins og áður segir til miðnættis föstudagsins 20. febrúar. Strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.

Tilnefningar til Eddunnar 2026 verða kynntar í mars.

Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.  

AÐRAR FRÉTTIR