Kæru framleiðendur
Nú líður að því að ákvarðað verður um framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2026. En árlega sendir ÍKSA (Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían) framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í flokknum ,,Besta alþjóðlega myndin”. Opnað hefur verið fyrir innsendingar til og með 5. ágúst 2025.
Gjaldgengar eru allar kvikmyndir, 40 mínútur eða lengri, sem frumsýndar eru á Íslandi á milli 1. október 2024 og 30. september 2025. Skilyrði er að þær hafi verið eða verði í almennum bíósýningum að lágmarki 7 daga samfleytt. Nánar um reglurnar hér.
Vakin er athygli á því að senda þarf inn verk sem eiga að koma til greina. Innsendingarformið er að finna hér á síðunni. Innsendingafrestur er til og með 5. ágúst 2025.
Dómnefndarfyrirkomulag
Stjórn ÍKSA skipar dómnefnd sem velur það kvikmyndaverk sem sent verður í forval Óskarsverðlaunanna í flokknum “Besta alþjóðlega myndin” (Best International Feature Film). Dómnefndin skal skipuð níu aðilum úr stjórnum fagfélaga í kvikmyndaiðnaðinum auk fulltrúa Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, kvikmyndahúsa á Íslandi og kvikmyndagagnrýnenda. Sjá lista hér fyrir neðan:
Allir fulltrúar dómnefndar verða að vera íslenskir ríkisborgarar og félagsmenn ÍKSA. Fulltrúar mega ekki hafa tengingu við innsend og gjaldgeng verk. Fulltrúar mega ekki sitja lengur en í 6 ár samfellt en þurfa þá að taka sér tveggja ára hlé.
Dómnefndin er skipuð við upphaf hvers árs af stjórn ÍKSA. Yfir árið reynir dómnefnd eftir bestu getu að sjá allar gjaldgengar myndir í kvikmyndahúsi.
Í júní kallar ÍKSA eftir innsendingum með skilafrest í ágúst.
Þegar innsendingarfresturinn er liðinn fær dómnefndin lista yfir myndirnar ásamt tilheyrandi tenglum og lykilorðum til að horfa á eða rifja upp. Dómnefnd kemur saman eftir að allir hafa náð að sjá öll kvikmyndaverkin, en fyrsti fundur felur í sér opnar umræður og að lokum velur hver dómnefndarmeðlimur þær tvær myndir sem viðkomandi telur standa upp úr.
Á seinni fundinum ræðir dómnefndin allar myndirnar sem lentu efst í vali dómnefndarmeðlima, með það að markmiði að ná samstöðu um þau tvö verk sem skara fram úr. Þá fer fram atkvæðagreiðsla dómnefndar þar sem valin kvikmynd þarf að lágmarki 51% atkvæða.
Þetta ferli tryggir vandlega íhugun og mat á hverri gjaldgengri mynd og lýkur með því að dómnefndin velur endanlegt framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna.
Með því að senda mynd inn til valnefndar í gegnum innsendingarformið samþykkir framleiðandi þátttöku myndar sinnar ásamt því að upplýsingum þeim sem koma þar fram, verði deilt með dómnefnd.
Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin
© Allur réttur áskilinn 2025