Dagsetning

Edduverðlaunin 2020

Edduverðlaunin 2020, uppskeruhátíð íslenska sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðarins sem ÍKSA stendur fyrir árlega voru veitt í sjónvarpþætti á RÚV þriðjudagskvöldið 6. október. Upphaflega var ráðgert að halda hátíðina með hefðbundnum hætti í mars sl. en fresta þurfti vegna COVID-19 faraldursins.

Að þessu sinni voru veitt verðlaun í 26 flokkum sem kosin voru af meðlimum ÍKSA, auk verðlauna fyrir sjónvarpsefni ársins sem eru áhorfendaverðlaun og voru valin í rafrænni kosningu. Þá voru árleg Heiðursverðlaun Eddunnar einnig veitt og komu þau í hlut Spaugstofunnar að þessu sinni.

 

Hér að neðan er listi yfir sigurvegara Eddunnar 2020:

 

Barna- og unglingaefni ársins
Goðheimar
Framleitt af Netop Films og Profile Pictures

 

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Kveikur
Framleiðandi RÚV

 

Heimildamynd ársins
Vasulka áhrifin
Framleiðendur Sagafilm og Krumma films

 

Kvikmynd ársins
Agnes Joy
Framleiðandi Vintage Pictures

 

Leikið sjónvarpsefni ársins
Pabbahelgar
Framleiðendur Zik Zak og Cubs Productions

 

Menningarþáttur ársins
Kiljan
Framleiðandi RÚV

 

Mannlífsþáttur ársins
Svona fólk
Framleiðandi Krumma films

 

Skemmtiþáttur ársins
Áramótaskaup 2019
Framleitt af Republik fyrir RÚV

 

Íþróttaefni ársins ársins
HM stofan – HM kvenna í fótbolta
Framleiðandi RÚV

 

Stuttmynd ársins
Blaðberinn
Framleiðandi Hero Productions Iceland

 

Brellur ársins
Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðardóttir og Haukur Karlsson
fyrir Ófærð 2

 

Búningar ársins
Margrét Einarsdóttir
fyrir Goðheima

 

Gervi ársins
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
fyrir Ófærð 2

 

Handrit ársins
Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
fyrir Agnes Joy

 

Hljóð ársins
Gunnar Árnason
fyrir Agnes Joy

 

Klipping ársins
Kristján Loðmfjörð og Lína Thoroddsen
fyrir Agnes Joy

 

Kvikmyndataka ársins
Maria von Hausswolff
fyrir Hvítur, hvítur dagur

 

Leikari í aðalhlutverki ársins
Ingvar E. Sigurðsson
fyrir Hvítur, hvítur dagur

 

Leikkona í aðalhlutverki ársins
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
fyrir Agnes Joy

 

Leikkona í aukahlutverki ársins
Ída Mekkín Hlynsdóttir
fyrir Hvítur, hvítur dagur

 

Leikari í aukahlutverki ársins
Björn Hlynur Haraldsson
fyrir Agnes Joy

 

Leikmynd ársins
Hulda Helgadóttir
fyrir Hvítur, hvítur dagur

 

Leikstjórn ársins
Hlynur Pálmason
fyrir Hvítur, hvítur dagur

 

Sjónvarpsmaður ársins
Helgi Seljan fyrir Kveik

 

Tónlist ársins
Edmund Finnis
fyrir Hvítur, hvítur dagur

 

Upptöku- eða útsendingarstjórn ársins
Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg
fyrir Söngvakeppnina 2019

 

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning
Dominos körfuboltakvöld – Stöð 2 Sport

 

Heiðursverðlaun Eddunnar 2020
Spaugstofan

AÐRAR FRÉTTIR