Dagsetning

Opnað fyrir innsendingar í Edduna

Byrjað er að taka á móti kvikmynda- og sjónvarpsverkum vegna Eddunnar 2016 sem haldin verður um mánaðarmótin febrúar/mars. Gjaldgeng eru verk sem frumsýnd eru opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2015 til 31. desember 2015. Sjá nánar um innsendingarreglur.

Innsendingarferlið er að fullu rafrænt og er gert í gegnum Innsendingarsíðu Eddunnar þar sem framleiðslufyrirtæki fylla út allar upplýsingar um þau verk sem ætlunin er að senda inn, borga innsendingargjaldið og senda verkin stafrænt á ftp þjón.

Gjald fyrir að senda inn verk í einn af níu aðalflokkum Edduverðlauna er 25 þúsund (auk vsk) og innsending í fagverðlaunaflokk kostar 5 þúsund (auk vsk).

Innsendingarfrestur til 7. janúar

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti fimmtudaginn 7. janúar, 2016 og strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.

Tilkynnt verður um tilnefningar til Edduverðlaunanna 10. febrúar 2015 og mun kosning Akademíumeðlima hefjast nokkrum dögum síðar.

Kjörgengi hafa allir þeir sem greiða aðildargjöld Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA fyrir árið 2016 áður en tilnefningar eru tilkynntar. Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka Akademíumeðlima í byrjun janúar.

Breytingar á reglum Eddunnar

Fagráð Eddunnar samþykkti í haust þá breytingu að atkvæði valnefnda (þ.e. niðurstöður úr starfi valnefnda) gildi 50% á móti atkvæðum meðlima ÍKSA í endanlegri kosningu á milli tilnefndra verka um Edduverðlaunin. Áður var slík regla aðeins í gildi í tilviki fagverðlauna Eddunnar.

Sjá nánar um reglur Eddunnar.

AÐRAR FRÉTTIR