Dagsetning

Kosið um Óskarsframlag Íslands

Kosning um framlag Íslands til Óskasverðlaunanna á næsta ári er hafin. Kosið er á milli þeirra fimm íslensku kvikmynda sem uppfylla skilyrði bandarísku kvikmyndaakademíunnar og eru frumsýndar á bilinu 1. október 2011 til 30. september 2012.

Þessar myndir eru í stafrófsröð:

Borgríki
Leikstjóri: Ólafur Jóhannesson
Handrit: Ólafur Jóhannesson, Hrafnkell Stefánsson
Framleiðendur: Ólafur Jóhannesson, Kristín Andrea Þórðardóttir

Djúpið
Leikstjóri: Baltasar Kormákur
Handrit: Jón Atli Jónasson, Baltasar Kormákur
Framleiðendur: Baltasar Kormákur, Agnes Johansen

Frost
Leikstjóri: Reynir Lyngdal
Handrit: Jón Atli Jónasson
Framleiðendur: Ingvar Þórðarson, Júlíus Kemp

Hetjur Valhallar – Þór
Leikstjóri: Óskar Jónasson
Handrit: Friðrik Erlingsson, Toby Genkel, Mark Hodkinson, Óskar Jónasson
Framleiðendur: Hilmar Sigurðsson, Arnar Þórisson

Svartur á leik
Leikstjóri: Óskar Þór Axelsson
Handrit: Óskar Þór Axelsson
Framleiðendur: Þórir S. Sigurjónsson, Skúli Fr. Malmquist, Arnar Knútsson

Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) sem kjósa rafrænt á milli myndanna fimm og stendur kosningin yfir í viku eða til mánudagsins 24. september. Alls eru tæplega 500 manns á kjörskránni en rétt til aðildar að ÍKSA hafa allir þeir sem hafa unnið að tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum.

Bandaríska kvikmyndaakademían hóf að veita Óskarsverðlaun fyrir bestu kvikmyndina á erlendu tungumáli árið 1947. Hverju landi er boðið að senda inn eina kvikmynd sem framleidd hefur verið á tilteknu tólf mánaða tímabili. Innsendar kvikmyndir fá sérstaka sýningu þar sem nefnd gefur hverri mynd einkunn. Þær fimm myndir sem fá hæstu einkunn eru tilnefndar til Óskarsverðlauna í flokknum besta kvikmyndin á erlendu tungumáli.

Ísland sendi sína fyrstu kvikmynd í forval Óskarsverðlaunanna árið 1981 og var það kvikmyndin Land og synir. Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, ein kvikmynd í fullri lengd og ein stuttmynd. Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson var tilnefnd árið 1992 í flokknum besta erlenda kvikmyndin. Árið 2006 var Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson tilnefnd í flokknum besta leikna stuttmyndin.

AÐRAR FRÉTTIR