Fara beint í efni
Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir

Heiðursverðlaun ÍKSA · 2025

Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir

Hjónin Egill Ólafsson og Tinna Gunnlaugsdóttir fengu heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar fyrir þeirra afar merka, fjölbreytta og mikilvæga framlag til íslenskrar kvikmyndalistar. Þau tilheyra hópi okkar allra fremstu og farsælustu listamanna.

Tinna og Egill hafa í bráðum hálfa öld verið afar stór og mikilvægur hluti íslenskra kvikmynda. Alls eru hlutverk þeirra í kvikmyndum og sjónvarpsverkum vel á sjötta tuginn.