Dagsetning

Opið fyrir innsendingar til Eddunnar 2021

Opnað hefur verið fyrir innsendingar á kvikmynda- og sjónvarpsverkum fyrir Edduna 2021. Gjaldgeng eru verk frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2020.

Innsendingaferlið er að fullu rafrænt á nýrri innsendingarvef Eddunnar.

Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp á slóð ÍKSA:  http://innsending.eddan.is/

Uppfært: Stjórn ÍKSA hefur fallið frá fyrri ákvörðun um að tilnefna þrjú verk í hverjum flokki í stað allt að fimm áður. Samþykkt hefur verið að hægt sé að tilnefna allt að fimm verk eða einstaklinga í flokka, séu innsendingar í viðkomandi flokk fimmtán eða fleiri. Ákveðið var að valnefndir komi saman og ræði verkin á sérstökum samráðsfundi áður en hver og einn valnefndarmaður sendi inn sinn kjörseðil.

Gjald fyrir innsent verk í aðalflokk Eddunar er kr 25.000 og innsending í flokk fagverðlauna kostar kr 5.000 (verð eru án vsk).

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti fimmtudaginn 11. febrúar 2021 og strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf. Stefnt er að tilkynningu tilnefninga í lok mars og að Edduverðlaunin verði veitt á vormánuðum.

Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.

AÐRAR FRÉTTIR