Dagsetning

Hvaða íslenska kvikmynd fer í Óskarinn 2020?

Nú líður að því að velja framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2020. Eins og fyrri ár eru það meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, sem kjósa um íslenska framlagið og að þessu sinni verður kosið á milli eftirfarandi íslenskra kvikmynda.

  • Héraðið
  • Hvítur, hvítur dagur
  • Tryggð
  • Undir halastjörnu

Kosningin er rafræn og fer fram dagana 18.-24. september.

Kjörskrá

Þeir félagsmenn í ÍKSA sem þegar hafa greitt félagsgjöldin fyrir árið 2019 og hafa greitt félagsgjöldin fyrir 16. september, eru nú á kjörskrá og fá senda rafræna kjörseðla á netfangið sitt.

Vinsamlegast munið eftir því að láta ÍKSA vita ef þið skiptið um netfang svo hægt sé að senda ykkur viðeigandi upplýsingar og kjörseðla. Við hvetjum fólk til að skrá sín persónulegu netföng hjá okkur fremur en vinnunetföng sem vilja breytast ört. Allar upplýsingar um breytt netföng skal senda á eddan@eddan.is

 

Heradid Hvitur, hvitur dagur Tryggd Undir halastjornu

AÐRAR FRÉTTIR