Dagsetning

Hvaða íslenska kvikmynd fer í Óskarinn?

Nú líður að því að velja framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2016. Eins og fyrri ár eru það meðlimir íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, sem kjósa um íslenska framlagið og að þessu sinni verður kosið á milli eftirfarandi íslenskra kvikmynda.

  • Austur
  • Fúsi
  • Grafir og bein
  • Hrútar
  • Webcam

Kosningin er rafræn og fer fram dagana 2.-7. september. Kosningin fer nú fram örlitlu fyrr en síðustu ár sem eykur að sama skapi möguleikana á að kynna þá mynd sem fyrir valinu verður.

Athugið að reynt verður að bjóða Akademíumeðlimum upp á að sjá þessar kvikmyndir í bíói en tilkynnt verður um tímasetningar þeirra sýninga í næstu viku samhliða kosningunni.

Kjörskrá

Þeir félagsmenn í ÍKSA sem þegar hafa greitt félagsgjöldin fyrir árið 2015 eða munu greiða félagsgjöldin fyrir 2. september næstkomandi, eru á kjörskrá og fá senda rafræna kjörseðla á netfangið sitt.

Þeir sem skulda félagsgjöldin hafa þegar fengið senda áskorun um að greiða gjöldin en greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldum ÍKSA voru sendir í heimabanka allra félagsmanna í byrjun árs með eindaga 22. febrúar.

Vinsamlegast munið eftir því að láta ÍKSA vita ef þið skiptið um netfang svo hægt sé að senda ykkur viðeigandi upplýsingar og kjörseðla. Við hvetjum fólk til að skrá sín persónulegu netföng hjá okkur fremur en vinnunetföng sem vilja breytast ört. Allar upplýsingar um breytt netföng skal senda á eddan@eddan.is eða brynhildur@eddan.is.

AÐRAR FRÉTTIR